Mjúkt eða hart vatn
Texti tekinn af heimasíðu Orkuveitunnar
Harka vatns er magn af kalsíum og magnesíum í vatni og er mæld í þýskri hörkueiningu (°1dH).
Formúlan er eftirfarandi:
°1dH=(Ca(mg/l)x2,497+Mg(mg/l)x4,116)/17,9
Skalinn er gróflega eftirfarandi:
0-4°dh = mjög mjúkt
4-8°dh = mjúkt
8-12°dh = aðeins hart
12-18°dh = nokkuð hart
18-30°dh = hart
>30°dh = mjög hart
Íslenskt vatn er undir 2 og á Reykjavíkursvæðinu er það 0,2 til 0,60 °dh eða sérstaklega mjúkt.
Ekki á að þurfa nein mýkingarefni eða kalkhreinsi eða sölt í þvotta/uppvöskunarvélar á Íslandi