Algengustu meindýrin á gróðri í gróðurhúsum, garðskálum og innandyra og helstu lífrænu varnirnar gegn þeim.
![]() |
![]() |
Blaðlús |
Sníkjuvespa að verpa í blaðlús |
Blaðlýs. (ýmsar tegundir). Stærð 1 – 5 mm.
Hvar halda þær sig helst?
- Halda sig mest í kringum vaxtarbrodd sprotanna og á yngstu blöðunum
Einkenni
- Hvítir hamir sem liggja ofan á blöðunum.
- Sjúga næringu úr frumunum og blöðin krumpast.
- Sykurkenndur saur sem hýsir sótsveppi.
- Sjást með berum augum.
Lífrænar varnir sem við mælum með: APHISCOUT (5 tegundir af sníkjuvespum í stauk, 250 stk.)
Spunamítill Ránmítill að yfirbuga spunamítil
Spunamítlar (spunamaur, roðamaur). Stærð 0,4 – 0,5 mm.
Hvar halda þeir sig?
- Lirfur og fullvaxin dýr eru neðan á blöðunum og sjúga næringu úr plöntunum.
Einkenni
- Skemmdirnar sjást sem gulir blettir á efri hluta blaðanna byrja oftast næst blaðstilknum.
- Ef mikið er af þeim, gulna blöðin og við sjáum spunaþræði.
- Sjást með berum augum- stækkunargleri.
Lífrænar varnir sem við mælum með: SPIDEX (Ránmítlar, 2000 stk.)
Kögurvængja Ránmítill að borða kögurvængju
Kögurvængjur (trips, nokkrar tegundir) Stærð 1 – 2 mm.
Hvar halda þær sig helst?
- Halda sig neðan á blöðum, blómatrips í blómum, púpustig í jarðvegi eða á plöntunni
Einkenni
- Skemmdir sjást sem dreifðir blettir um allt blaðið.
- Sjúga næringu og skemma frumurnar.
- Draga úr vexti.
- Útlitsskemmdir.
- Sjást með berum augum.
Lífrænar varnir sem við mælum með: THRIPEX (Ránmítlar á blöð, 50.000 stk.) og ENTOMITE (Ránmítlar í jarðveg, 10.000)
Mjöllús Sníkjuvepa að verpa inn í egg mjöllúsarinnar
Mjöllús (hvítfluga), fullvaxin um 1,5 til 2 mm.
Hvar halda þær sig helst?
- Halda sig mest í toppi plantna og á neðraborði blaða.
Einkenni
- Ef komið er við plönturnar, flýgur mjöllúsin upp.
- Lirfurnar sjást á neðra borði eldri blaða.
- Sogskemmdir og sykurkenndur saur leggst á blöðin og á honum þrífast sótsveppir.
- Sjást með berum augum.
Lífrænar varnir sem við mælum með: EN-STRIP (Sníkjuvespur, 3.000 stk.)
Ranabjalla Svarðmý
Við erum einnig með lífrænar varnir gegn Ranabjöllum og Svarðmýi.
Hafa þarf í huga að jarðvegshiti sé kominn yfir 8°C til að hægt sé að nota lífrænar varnir gegn þeim.
Lífrænar varnir eru lifandi verur og því þarf að panta þær vikulega.
Engar lífrænar varnir eru geymdar á lager í versluninni.
Pantanir eru aðeins gerðar gegn fyrirframgreiðslu.
Pöntun þarf að vera frágengin fyrir klukkan 13:00 á miðvikudögum og þær síðan afhentar næsta mánudag þar á eftir.
Hægt er að panta lífrænar varnir í síma 534-9585 eða í verslun okkar Hraunbæ 117.