Hvað er vatnsrækt?
Að rækta í vatni, þar sem engin mold er notuð er í raun ótrúlega einfalt.
Það sem til þarf er súrefnisríkt vatn, góð næring, hiti og birta.
Næringarlausninni má líkja við fljótandi jarðveg sem er auðugur af steinefnum, snefilefnum og súrefni.
- Í vatnsrækt geturðu haft fullkomna stórn á næringarupptöku plantna.
- Plöntur vaxa margfalt hraðar og gefa stærri og meiri uppskeru.
- Auðveldara er að koma í veg fyrir pöddur og jarðvegsbundnar óværur sem þrífast vanalega í mold.