Lýsing
Blanda af öllum mögulegum litum í uppréttum klösum sem setja skemmtilegan svip á beð,ilma vel. Blómin eru oft tvílit. Fjölær lúpína blómstrar ríkulega og er litríkari en einær lúpína.
Þær gera litlar kröfur til jarðvegsins. Sáið þunnt beint í garðinn,sparar grisjun. Getur blómstrað strax fyrsta árið, en blómstrar ríkulegar árin á eftir.
Góðar leiðbeiningar í máli og myndum eru aftan á fræ umbúðunum.
Gott er að hafa í huga að leiðbeiningarnar miðast við aðstæður í Hollandi.
